
Embla Medical | Össur
Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Markmið okkar er að bæta hreyfanleika fólks og gera því kleift að lifa lífinu án takmarkana. Embla Medical var stofnað árið 2024 til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins í heilbrigðistækni. Vörumerkin Össur, College Park, Fior & Gentz og ForMotion tilheyra öll Emblu Medical.
Við erum leiðandi afl á heimsvísu með um 4.500 starfsmenn í yfir 40 löndum. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi en starfsstöðvar víða um heim sinna vaxandi markaði. Félagið er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku.
Mannauðurinn er kjarninn í okkar árangri. Sem hátæknifyrirtæki leggjum við ríka áherslu á að laða að okkur hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram og sýnir frumkvæði.

Starfsmaður á lager | Warehouse Employee
Við óskum eftir að ráða öfluga manneskju í vöruhús Össurar sem er áhugasöm um að takast á við nýjar áskoranir, lipur í samskiptum og fellur vel inn í öflugan hóp starfsfólks.
Vöruhúsið þjónustar allar framleiðsludeildir og stoðdeildir Össurar. Við leggjum mikla áherslu á hátt þjónustustig, vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur
- Bílpróf, lyftararéttindi er kostur
- Geta til að vinna í teymi og sjálfstætt
- Jákvæðni og heiðarleiki
- Stundvísi
- Þjónustulund og jákvæðni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
-
Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf
Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur27. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiJákvæðniÖkuréttindiStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Bílstjóri á ruslabíl
Hringrás Endurvinnsla

Áhaldaleiga Húsasmiðjunnar í Skútuvogi
Húsasmiðjan

Vörubílstjóri - krókheysisbíll
Stéttafélagið ehf.

Starfskraftur á lager Skútuvogi
Olís ehf.

Starfsmaður óskast í stönsun og frágang í prentsmiðju
Litlaprent ehf.

Meiraprófsbílstjóri á Patreksfirði
Eimskip

Almenn störf við borframkvæmdir
Jarðboranir

Framtíðarstarf í vöruhúsi Garra!
Garri

We are hiring skilled steel workers
Atlas Verktakar ehf

Bílstjóri í flotdeild
Steypustöðin

Vörutínsla - helgar og kvöld / Order Picking – Evenings and Weekends
Bakkinn vöruhótel

Starfsmaður á lager
GKS innréttingar