

Design Transfer Engineer | Össur
Langar þig að innleiða nýjar vörur í framleiðslu hjá Össuri?
Design Transfer teymi Össurar leitar að drífandi og metnaðarfullum Design Transfer Engineer í tímabundið starf til eins árs. Í þessu hlutverki vinnur þú að því að brúa bilið á milli vöruþróunar og framleiðslu með því að innleiða nýjar vörur í framleiðslu og styðja við flutning vara á milli framleiðslustaða eða birgja. Þú vinnur náið með samstarfsfólki í vöruþróun, gæðadeild, innkaupum, procurement og vörustjórnun að farsælli innleiðingu og stöðugum umbótum.
Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.
Sem Design Transfer Engineer gegnir þú lykilhlutverki í að færa vörur úr þróun yfir í framleiðslu, hanna traust framleiðsluferli og styðja við þverfagleg verkefni sem bæta hreyfanleika og lífsgæði fólks um allan heim. Í því felst meðal annars að:
-
Innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu í nánu samstarfi við þverfagleg teymi
-
Hanna framleiðsluferli
-
Styðja við þróun í þróunarferli nýrrar vöru
-
B.Sc í verk- eða tæknifræði
-
Brennandi áhugi á framleiðslu og framleiðsluferlum
-
Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean) er kostur
-
Góð greiningarfærni, þar á meðal hæfni til að vinna með gögn og kostnaðargreiningar
-
Skipulagður einstaklingur með frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt og taka ábyrgð á eigin verkefnum
-
Metnaður, jákvætt viðhorf og áhugi til að leggja þitt að mörkum til þróunar og framleiðslu vara sem bæta hreyfanleika fólks
-
Mjög góð enskukunnátta er skilyrði
-
Alþjóðlegt starfsumhverfi með sterkum liðsanda og sameiginlegan tilgang.
-
Tækifæri til náms, vaxtar og faglegrar þróunar.
-
Tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og leggja beint af mörkum til árangurs í rekstri.
-
Vinnustaður sem hefur það að markmiði að bæta hreyfanleika og lífsgæði fólks.
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
- Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
- Frí heilsufarsmæling og ráðgjöf
- Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Öflugt félagslíf
Enska
Íslenska










