
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Meiraprófsbílstjórar í innanbæjarakstur í Reykjavík
Eimskip í Reykjavík leitar að þjónustuliprum og ábyrgum meiraprófsbílstjórum í framtíðarstarf.
Um er að ræða tvær stöður með ólíkum vinnutíma, annars vegar kl. 7-15 á virkum dögum og hinsvegar kl. 7-19 með 3-2-3 vaktafyrirkomulagi.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk sýni metnað til að skila árangri, vinnur vel í teymi og sýnir virðingu í samskiptum – í takt við gildi Eimskips: Liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.
Hjá Eimskip í Reykjavík er nýlegur floti flutningabíla sem er vel viðhaldið og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Mikil áhersla er á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörudreifing í Reykjavík og nágrenni
- Lestun og losun hjá viðskiptavinum
- Jákvæð samskipti og framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapófa C og CE er skilyrði
- Réttindi til aksturs í atvinnuskyni er skilyrði
- Lyftarapróf er kostur
- ADR réttindi er kostur
- Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð líkamleg færni
Fríðindi í starfi
- Heitan mat í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í samhentu teymi.
- Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land.
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
Auglýsing birt8. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniÖkuréttindiSamviskusemiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Bílstjóri hjá Sælkeramat (Tímabundið starf frá 1. ágúst, með möguleika á áframhaldi)
Sælkeramatur ehf.

N1 verslun Reyðarfjörður
N1

Akstur og vinna í vöruhúsi
Dropp

Meiraprófsbílstjóri með ADR réttindi
Samskip

Sendibílstjóri / Driver - Meirapróf
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Bílstjóri óskast í flutningaþjónustu
Landspítali

Meiraprófsbílstjóri - Þykkvabæjar ehf.
Þykkvabæjar

Vagnstjóri - Sumar 2026
Icelandia

Vinnuvélastjórnandi og bílstjóri
Þróttur ehf

Flutningabílstjóri hjá Steypustöðinni
Steypustöðin

Starfsmaður á verkstæði - Workshop employee
ICS ehf.

Bílstjóri í þjónustu við fatlaða og eldri borgara
Teitur