Oche Reykjavik
Oche Reykjavik
Oche Reykjavik

Framkvæmdastjóri óskast á Oche Reykjavík 🎯

Viltu leiða einn vinsælasta skemmtistað landsins og taka þátt í að móta næsta kafla í sögu Oche Reykjavík?

Oche Reykjavík leitar að öflugum framkvæmdastjóra sem vill leiða metnaðarfullt teymi og halda áfram að þróa einn af vinsælustu afþreyingar og skemmtistað landsins.

Oche er staðurinn þar sem tugþúsundir gesta koma saman á hverju ári til að skemmta sér. Hvort sem það er í pílu, shufl, karaoke, góðum mat eða kokteilum, þá er markmið okkar alltaf það sama: að skapa ógleymanlega upplifun.
Margir segja að Oche sé staðurinn þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að djamma og við ætlum að halda því þannig.

Við leitum að einstaklingi sem hugsar til framtíðar, hefur metnað til að byggja upp öflugan rekstur og vill verða mikilvægur hluti af teyminu. Fyrir réttan einstakling geta skapast spennandi tækifæri til aukinnar þátttöku í fyrirtækinu til lengri tíma.

Helstu verkefni

  • Leiða daglegan rekstur Oche Reykjavík.
  • Byggja upp, styðja og hvetja starfsfólk.
  • Tryggja framúrskarandi upplifun gesta.
  • Skipuleggja rekstur, þjónustu og mannafla.
  • Fylgjast með rekstrarárangri og koma auga á tækifæri til umbóta.
  • Vinna náið með stjórn að áframhaldandi þróun fyrirtækisins.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur reynslu af rekstri og stjórnun.
  • Er öflugur leiðtogi sem nær því besta fram í fólki.
  • Elskar þjónustu og lifandi umhverfi.
  • Er skipulagður, lausnamiðaður og metnaðarfullur.
  • Hugsar eins og eigandi og vill taka virkan þátt í að byggja upp fyrirtæki til framtíðar.

Við bjóðum

  • Einstakt tækifæri til að leiða einn vinsælasta skemmtistað landsins.
  • Öflugt og metnaðarfullt teymi.
  • Fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins.
  • Möguleika á að hafa raunveruleg áhrif á þróun fyrirtækisins.
  • Vera hluti af eigendahóp Oche Reykjavík.

Ef þú hefur metnað til að leiða sterkt teymi og vilt taka þátt í að þróa einn af öflugustu afþreyingarstöðum landsins, þá viljum við heyra frá þér.

Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar