Íshokkísamband Íslands
Íshokkísamband Íslands
Íshokkísamband Íslands, skammstafað ÍHÍ, og er æðsti aðili um öll mál íshokkííþróttarinnar innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). ÍHÍ er aðili að Alþjóða Íshokkísambandinu.
Íshokkísamband Íslands

Framkvæmdastjóri Íshokkísambands Íslands

Hefur þú brennandi áhuga á íþróttastarfi og vilt taka virkan þátt í uppbyggingu á ört vaxandi íþrótt á Íslandi og á alþjóðavísu?

Hefur þú framúrskarandi skipulagshæfileika, gott vald á rekstri og einstaka hæfni í mannlegum samskiptum?

Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn Íshokkísambands Íslands og skal sjá um öll dagleg störf sem til falla og samkvæmt ákvörðun stjórnar.

Vinnutími er sveigjanlegur en ræðst af þörfum sambandsins og þeim verkefnum sem leysa þarf hverju sinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
Framfylgja ákvörðunum íshokkíþings og stjórnar
Samskipti við innlenda og erlenda hagsmunaaðila
Skipulag og framkvæmd innlendra og alþjóðlegra móta
Virk aðkoma að framtíðarstefnumótun ÍHÍ og íshokkí á Íslandi
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af rekstri og stjórnun
Reynsla af viðburðastjórnun mikill kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Góð haldbær tölvukunnátta
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði, frumkvæði og faglegur metnaður
Auglýsing stofnuð8. ágúst 2023
Umsóknarfrestur17. ágúst 2023
Starfstegund
Staðsetning
Engjavegur 6, 104 Reykjavík
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.