
Eimur
Eimur er samstarfsverkefni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins, Landsvirkjunar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur.
Markmið Eims er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi.
Framkvæmdastjóri
Hefur þú hefur brennandi áhuga á sjálfbærnimiðaðri verðmætasköpun og orkuskiptum?
EIMUR leitar að drífandi og jákvæðum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemina.
Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Norðurlandi og mikill kostur ef viðkomandi getur hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Ábyrgð á öflun nýrra verkefna
- Verkefnastjórnun og eftirfylgni
- Samskipti og tengsl við hagaðila
- Markaðssetning og kynning á starfseminni
- Ýmis önnur fjölbreytt verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
- Reynsla af stjórnun og rekstri
- Þekking og áhugi á orkumálum er kostur
- Reynsla af þátttöku í Evrópuverkefnum er kostur
- Áhugi og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
- Leiðtogahæfni og drifkraftur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Reynsla innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
- Góð tungumálakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Markmið EIMS
- Stuðla að aukinni verðmætasköpun með sterkum stuðningi við nýsköpun og hátækni
- Stuðla að grænni atvinnuuppbyggingu
- Stuðla að bættri nýtingu auðlinda og innleiðingu hringrásarhagkerfis
- Auka matvælaframleiðslu og áframvinnslu matvæla á svæðinu með það fyrir augum að auka verðmætasköpun
- Fjölga möguleikum svæðisins til að takast á við áskoranir samtímans og gera svæðið leiðandi þegar kemur að samspili orku, umhverfis og samfélags með sjálfbærni og verðmætasköpun að leiðarljósi
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiStefnumótunVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Sveitarstjóri hjá Eyjafjarðarsveit
Eyjafjarðarsveit

Framkvæmdastjóri
Festa lífeyrissjóður

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Framkvæmdastjóri
Síld og fiskur ehf - Ali

Framkvæmdastjóri
Félagsbústaðir

Framkvæmdastjóra UMF Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis
UMF ÞÓR & ÆGIR

Framkvæmdastjóri Hattar
Íþróttafélagið Höttur