
N1
N1 sér fólki og fyrirtækjum fyrir eldsneyti, raforku, rekstrarvörum, veitingum og afþreyingu á þjónustustöðvum félagsins um allt land. Okkar hlutverk er að halda samfélaginu á hreyfingu með persónulegri þjónustu og markvissu vöruúrvali sem uppfyllir kröfur viðskiptavina hvert sem ferð þeirra er heitið.
N1 sparar viðskiptavinum bæði tíma og fyrirhöfn með þéttu neti þjónustustöðva og umbunar þeim með margvíslegum ávinningi af viðskiptunum, m.a. með N1 kortinu sem safnar punktum og nýtast á N1 stöðvum um land allt.
N1 starfar út frá þremur grunngildum sem eru: virðing, einfaldleiki og kraftur. Við sýnum hvert öðru virðingu, veitum þjónustu sem við getum verið stolt af og berum virðingu fyrir umhverfinu. Við leggjum okkur fram við að einfalda líf viðskiptavina okkar og liðsinna með góðu aðgengi að vörum okkar og þjónustu. Við hleypum krafti í samfélagið með öflugri dreifingu og afgreiðslu eldsneytis en einnig með stuðningi við hreyfingu, heilsubót og góð málefni sem auðga mannlífið.
Vel staðsettar þjónustustöðvar og verslanir um land allt, fyrsta flokks dekkja- og smurþjónusta og öflug fyrirtækjaþjónusta gera N1 að sterkri heild sem er mikilvægur hluti af íslensku samfélagi.

Fræðslufulltrúi
N1 leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum fræðslufulltrúa sem hefur áhuga á að byggja upp og þróa fræðslustarf innan félagsins. Starfið felur einnig í sér þátttöku í fjölbreyttum mannauðstengdum verkefnum.
Um er að ræða fjölbreytt starf í fallegu vinnuumhverfi á höfuðstöðvum félagsins á Dalvegi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greining á fræðsluþörf og þróun fræðsluáætlana
- Umsjón með staðbundinni og rafrænni fræðslu
- Þróun og utanumhald móttökuferlis nýrra starfsmannaeritt
- Þátttaka í þróun og innleiðingu fræðsluefnis og aðferða
- Þátttaka í daglegum verkefnum innan mannauðssviðs
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfið, háskólamenntun er kostur
- Reynsla af fræðslu – og/eða mannauðsmálum er æskileg
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjar stafrænar lausnir
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Auglýsing birt8. ágúst 2025
Umsóknarfrestur18. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)