KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Forstöðumaður markaðsmála hjá KPMG

KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum sérhæfða ráðgjöf og lausnir á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skattskila, lögfræði og viðskiptaráðgjafar. Á Íslandi starfa um 250 sérfræðingar hjá KPMG á 13 starfsstöðvum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Forstöðumaður markaðsmála hjá KPMG

KPMG leitar að drífandi og metnaðarfullum stjórnanda til að leiða markaðsmál félagsins. Starfið er á stoðsviði KPMG og heyrir undir fjármála- og rekstrarstjóra KPMG.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiða og móta markaðsstefnu, markaðsáætlun, markaðsgreiningar og uppbyggingu vörumerkis KPMG.
  • Leiða skipulagningu innra og ytra markaðsefnis, t.d. samskipti við fjölmiðla, gerð auglýsinga, markaðsherferða og skipulagning viðburða.
  • Verkefnastýring öflugs markaðsteymis.
  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi markaðsleiðtoga innan KPMG.
  • Aðkoma að stefnumótun og innleiðingu þvert á félagið.
  • Vinna með stjórnendum að því að tryggja framúrskarandi þjónustuupplifun viðskiptavina.
  • Stuðningur við stjórnendur í verkefnum tengdum viðskiptaþróun félagsins, t.d. CRM, sölustarf, þróun nýrra lausna og samskipti við samstarfsaðila KPMG.

Um er að ræða spennandi starf í öflugu og alþjóðlegu fyrirtæki.

Hæfniskröfur:

  • Umfangsmikil reynsla af markaðsmálum.
  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og metnaður.
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum.
  • Reynsla af almannatengslum og viðskiptaþróun er kostur.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Gott vald á íslensku og ensku, geta til að vinna í alþjóðlegu samstarfi.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.

Að vinna hjá KPMG

Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.

Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.

Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af og starfa með leiðandi sérfræðingum hjá KPMG hérlendis og erlendis.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
  • Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2025.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).

Nánari upplýsingar veita Sigrún Kristjánsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri ([email protected]) eða Erik Christianson mannauðsstjóri á [email protected]

Auglýsing birt6. nóvember 2025
Umsóknarfrestur23. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar