Álfhólsskóli
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli

Forstöðumaður frístundar Álfhólsskóla

Álfhólsskóli leitar að jákvæðum og áhugasömum starfsmönnum til þátttöku í skemmtilegu skólastarfi.

Í Álfhólsskóla eru um 570 nemendur í 1. til 10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla er lögð á þátttöku í þróunarverkefnum. Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins. Í skólanum eru starfrækt sérhæfð námsver fyrir einhverfa nemendur.

Einkunnarorð skólans eru: menntun – sjálfstæði - ánægja.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með skipulagi og rekstri frístundar
  • Samvinna og samstarf við kennara, foreldra og stjórnendur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólanám (BEd, BA) á sviði tómstunda-, uppeldis- og/eða félagsfræða
  • Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
  • Hæfni í samskiptum, frumkvæði og sköpunargleði
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð tök á íslensku bæði í máli og riti

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2022. Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2022.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Upplýsingar um skólastarfið í Álfhólsskóla er að finna á www.alfholsskoli.is.

Nánari upplýsingar gefa Freyja Hlín Valgeirsdóttir forstöðumaður frístundar eða Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri eða síma 441 3800 eða með fyrirspurn á [email protected].

Auglýsing birt20. maí 2022
Umsóknarfrestur3. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar