
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík undirbýr samfélagið fyrir framtíðina. Við stöndum framarlega á alþjóðavísu í að skapa og miðla þekkingu með siðferði, jafnræði og sjálfbærni að leiðarljósi.
Háskólinn er hreyfiafl í þróun atvinnulífs og samfélags, með virku samstarfi og menntun sem mætir þörfum þeirra.
Háskólinn býður framúrskarandi nám, stuðning og starfsaðstöðu. Hann styrkir nemendur í að byggja brýr á milli fræðigreina, tengir þau við atvinnulíf og býður upp á námsleiðir sem hægt er að sníða að eigin hæfni og áhugasviðum. Í rannsóknarstarfi leggur háskólinn áherslu á samvinnu, skapandi hugsun og heilindi.
Háskólinn er driffjöður nýsköpunar í gegnum hagnýtingu rannsókna og þjálfun fyrir alla nemendur. Sjálfbærni er undirliggjandi þáttur í námi, rannsóknum og rekstri háskólans.

Forritari
Háskólinn í Reykjavík auglýsir eftir forritara í fullt starf í þróunarhóp á upplýsingatæknisviði háskólans. Hlutverk þróunarhóps er að þróa og innleiða hugbúnaðarlausnir sem styðja við ferla skólans, s.s. umsóknarkerfi, nemendagátt, útskriftarkerfi og samþættingu við önnur ytri og innri kerfi. Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi með ýmsum tækifærum til náms og persónulegrar þróunar. Viðkomandi mun vinna að nýsköpunar- og samþættingarverkefnum þar sem leitast er við að leysa verkefni á sem skilvirkastan hátt með þeim lausnum sem henta best hverju sinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greining á þörfum, tæknilegum kröfum og hönnun hugbúnaðarlausna sem styðja við vinnuferla háskólans
- Forritun á lausnum, uppbygging á gagnaskilum (API) og hönnun/útfærsla á samþættingu milli kerfa
- Þátttaka í þróun upplýsingatækni innan HR
Menntunar- og hæfniskröfur
- Grunnháskólapróf í tölvunarfræði eða öðru sambærileguraungreinanámi
- Umtalsverðstarfsreynsla í flóknu tækniumhverfi
- Þekking og/eða reynsla af eftirfarandi: C#, SQL, ReactJS, REST API og MSMQ
- Færni í þarfagreiningu og reynsla af Scrum/Kanban aðferðarfræði
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði, metnaður og sveigjanleiki
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt22. júlí 2024
Umsóknarfrestur6. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (11)

Technical Artist (Mid-level/Senior), Unreal Engine 5
Aveo ehf.

Senior Infrastructure Engineer
Fenris Creations

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (Quality Engineer)
SnerpaPower

Sérfræðingur í áhættustýringu - tímabundið starf
Íslandsbanki

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Software Engineer
Treble Technologies

SnerpaPower - Sérfræðingur í skýjalausnum
SnerpaPower

Sérfræðingur í upplýsingatækni
Lagerinn Iceland ehf.

Backend Software Engineer
Asana

Senior Backend Software Engineer
Asana

Senior Embedded Software Engineer
DTE