
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Forritari
Við hjá rekstrarsviði BYKO leitum að metnaðarfullum leiðtoga til að ganga til liðs við öfluga liðsheild.
BYKO er í vegferð að stafrænni framtíð og leitumst því eftir metnaðarfullum og traustum einstaklingi til að taka þátt í að leiða þessa vegferð þvert á fyrirtækið.
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum forritara í Microsoft Dynamics. Starfið felst í ýmiskonar hugbúnaðarþróun ásamt þátttöku í innleiðingar- og uppfærsluverkefnum.
Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Við leitum að einstaklingi með:
- Menntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilega reynslu, skilyrði
- Reynslu af forritun á Microsoft Dynamics AX eða sambærilegu viðskiptakerfi
- Þekking og reynslu á SQL og gagnagrunnsforritun
- Nokkurra ára reynsla af þróun hugbúnaðar til útgáfu
Helstu verkefni
- Uppbygging, samþætting og viðhald á Microsoft Dynamics AX umhverfi
- Þarfagreiningar, hönnun, forritun, ráðgjöf og þjónusta
- Uppbygging fram- og/eða bakendalausna
- Vinna við samþættingu hugbúnaðarkerfa og hugbúnaðareininga
- Þátttaka í þarfagreiningu fyrir þróun á hugbúnaðarlausnum
Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni og búsetu.
Allar frekari upplýsingar veitir Sveinborg Hafliðadóttir [email protected]
Auglýsing birt23. nóvember 2021
Umsóknarfrestur5. desember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum
Íslandssjóðir

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista

Product Designer / Engineer | Össur
Embla Medical | Össur

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Software Engineer
Treble Technologies

Alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálateymi
Reyktal þjónusta ehf.

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet hf.

Data Engineer
atNorth

Byggingatæknifræðingur
Verksýn

Tækni-/Verkfræðingur í framleiðslu (e. Validation Engineer)
Kerecis