

Forfallakennari í Kársnesskóla
Forfallakennari óskast í Kársnesskóla veturinn 2022 - 2023
Kársnesskóli er heildstæður grunnskóli í vesturbæ Kópavogs. Í skólanum eru um 660 nemendur í 1. til 10. bekk og 110 starfsmenn og þar ríkir góður starfsandi. Við skólann er starfrækt frístund fyrir börn í 1. til 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Í Kársnesskóla eru allir nemendur í 5.-10.bekk með spjaldtölvur og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.
Ráðningartími og starfshlutfall
Um er að ræða tímabundna ráðningu skólaárið 2022 – 2022 í tilfallandi stundakennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu
- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
Upplýsingar gefa skólastjóri, Björg Baldursdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 441-4600
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.











