
Teitur
Teitur er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í ferðaþjónustu, stofnað árið 1963.
Fyrirtækið rekur yfir 100 hópferðabíla í öllum stærðarflokkum og þjónustar bæði erlenda og innlenda farþega.
Árið 2024 tók Teitur á móti um 63.000 ferðamönnum í 1.800 hópum, aðallega frá Asíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi og Norðurlöndunum. Þá ferðast einnig árlega fjöldi Íslendinga með fyrirtækinu, meðal annars í hópferðum, skólaakstri og ferðaþjónustu fatlaðra og eldri borgara.
Verkstæði fyrirtækisins er vel búið og uppfyllir allar nútímakröfur, þar á meðal með fullkomnum bilanagreiningarbúnaði.
Einkunnarorð Teits eru þjónusta, traust og ánægja, og fyrirtækið hefur verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2013.

Flotastjóri
Teitur Jónasson ehf. óskar eftir starfsmanni í flotastjóradeild. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfsstöð er á Dalvegi 22 í Kópavogi. Vinnutími er 07:00-17:00 alla virka daga ásamt bakvöktum með neyðarsíma um kvöld og helgar eina viku í mánuði að jafnaði.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er í senn jákvæður, þjónustulundaður, töluglöggur og á gott með að starfa bæði í hópi og sjálfstætt. Starfsmenn í flotadeild þurfa að geta unnið undir álagi og tekið skjótar ákvarðanir, þurfa að vera lausnamiðaðir og með sterka ábyrgðarkennd.
Umsækjendur þurfa að tala góða íslensku og ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun á bílstjórum
- Raða bílum og bílstjórum á verkefni
- Eftirfylgni með stimpilklukku
- Ráðningar á bílstjórum
- Þjálfun bílstjóra
- Samskipti við bílstjóra
- Eftirfylgd með gæðastöðlum
- Kostnaðargreining
- Skýrslugerð
- Eftirfylgni á verkferlum
- Áætlanagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð tölvukunnátta
- Skipulagshæfileikar
- Frumkvæði
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg
- Íslenskukunnátta
- Enskukunnátta
Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur3. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 22, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiRáðningarSamskipti í símaSamviskusemiSkipulagÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Common Service Assistant
Sendiráð Kanada

Deildarstjóri geislameðferðardeildar
Landspítali

Lundarskóli: Deildarstjóri forvarna- og frístundamála grunnskóla
Akureyri

Verkefnastjóri þjónustu- og rekstrar
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet

Forstöðumaður kerfisþróunar og rannsókna
Landsnet

Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO)
Rekstrarsvið - Keahótel ehf.

Viðskiptagreinandi (e. Business Analyst)
Torcargo

Þjónusturáðgjafi á bifreiðaverkstæði
Bílvogur

Þjónustufulltrúi
Tryggingar og ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur í birgðastýringu og bakvinnslu
Öryggismiðstöðin

Sérfræðingur bókhalds
Norðurál