Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar

Vinnuskólinn í Borgarbyggð leitar af öflugum flokkstjórum í sumar.

Flokkstjórar starfa með ungmennum á aldrinum 13.-16. ára.

Hlutverk vinnuskólans er að veita nemendum uppbyggileg sumarstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Lögð er áhersla á að venja nemendur við það sem koma skal á hinum almenna vinnumarkaði, reglusemi, stundvísi og ábyrgðartilfinningu. Áhersla er lögð á að starfsumhverfið sé hvetjandi og gefandi.

Starfsstöðvar eru Borgarnes, Kleppjárnsreykir og Bifröst.

Helstu verkefni og ábyrgð
-Sér að hluta til um skipulagningu á verkefnum fyrir vinnuhópa 13-16 ára unglinga í samráði við yfirflokksstjóra.
-Stjórnar vinnuskólahópi á vettvangi, leiðbeinir um rétt vinnubrögð og hvetur hópinn til góðra verka.
-Flokksstjóri tekur þátt í þeim verkum sem hópurinn sinnir dags daglega.
-Ber ábyrgð á að skila tímaskýrslum nemenda til yfirflokksstjóra.
-Umsjón með hópeflisvinnu og forvarnarstarfi í viðkomandi hóp.
Menntunar- og hæfniskröfur
-Lágmarksaldur er 20 ár.
-Áhugi á að vinna með unglingum er skilyrði.
-Reynsla af stjórnun og vinnu með ungu fólki er æskileg.
-Lipurð í samskiptum og samstarfi.
-Stundvísi og samviskusemi.
-Gerð er sú krafa að flokksstjórar í Vinnuskóla séu góðar fyrirmyndir í leik og starfi
Auglýsing stofnuð4. apríl 2024
Umsóknarfrestur7. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar