SINDRI
SINDRI
SINDRI

Fjölbreytt sumarstarf í Kópavogi

Við hjá Sindra í Kópavogi erum að leita að öflugum og metnaðarfullum einstakling í fjölbreytt starf í sumar með möguleika á áframhaldandi hluta- eða fullu starfi eftir sumarið.

Sindri er verslunar og þjónustufyrirtæki á sviði byggingalausna, festinga, véla, verkfæra og vinnufatnaðar. Í höfuðstöðvum okkar í Kópavogi er stór verslun og vöruhús og þar vinnur einvala lið við að þjónusta okkar frábæru viðskiptavini. Við erum samheldin, hjálpsöm og jákvæð upp til hópa og bjóðum upp á frábært vinnuumhverfi.

Vegna mikilla anna viljum við bæta í hópinn sem allra fyrst! Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, öll kyn og allan aldur.

Ef þú ert að leita að skemmtilegri vinnu í góðum félagsskap og ert tilbúinn að leggja þig allan fram við að veita framúrskarandi þjónustu þá erum við að leita að þér.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku og enskukunnátta
framúrskarandi þjónustulund
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla og þjónusta viðskiptavina
Áfylling í verslun
Taka saman pantanir
Framsetning og verðmerkingar
Önnur tilfallandi verkefni í verslun eða vöruhúsi
Fríðindi í starfi
jafnlaunavottun
stytting vinnudags
íþróttastyrkur
niðurgreiddur hádegismatur
Auglýsing birt13. júní 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Smiðjuvegur 11, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar