Norðurþing
Norðurþing

Fjármálastjóri

Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum hjá sveitarfélaginu.

Fjármálastjóri hefur yfirumsjón með áætlanagerð og uppgjöri sveitarfélagsins og samhæfingu verkefna á sviði fjármála. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri og er fjármálastjóri staðgengill hans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn sveitarfélagsins
  • Undirbúningur, gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana
  • Yfirumsjón með fjárreiðum, innkaupum og reikningshaldi
  • Yfirumsjón með framlagningu árshlutareikninga og ársreikninga
  • Samstarf og samskipti við endurskoðendur
  • Greiningarvinna og miðlun upplýsinga til kjörinna fulltrúa og stjórnenda
  • Samningagerð og samskipti við aðila innan og utan sveitarfélagsins
  • Ýmis umbótaverkefni sem snúa m.a. að innleiðingu nýrra kerfa og gerð verkferla
  • Ábyrgð á launavinnslu og umsjón og eftirliti með kjarasamningum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði fjármála, viðskipta, endurskoðunar eða reksturs. Framhaldsmenntun æskileg
  • Reynsla af reikningshaldi, endurskoðun, áætlanagerð og fjármálastjórnun
  • Stjórnunarreynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
  • Afar góð greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni
  • Reynsla af samningagerð kostur
  • Góð leiðtoga-, samskipta- og stjórnunarhæfni
  • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku og ensku
Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ketilsbraut 7, 640 Húsavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar