

Ert þú leiðtoginn sem vilt taka þátt í næsta kafla í vegferð Avians? Við leitum eftir fjármála
Avians leitar að öflugum og framsýnum fjármálastjóra til að ganga til liðs við metnaðarfullt teymi stjórnenda á spennandi tímamótum í þróun fyrirtækisins.
Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjármálastýringu, rekstrargreiningu og stefnumótandi ráðgjöf til stjórnenda og stjórnar. Starfið er lykilhlutverk innan fyrirtækisins og viðkomandi verður virkur þátttakandi í áframhaldandi uppbyggingu og þróun Avians.
Fjármálastjóri verður hluti af framkvæmdastjórn félagsins þar sem stefna, menning og framtíðarsýn fyrirtækisins gegna lykilhlutverki. Við leitum að einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir því að leiða fyrirtæki áfram sem hluti af öflugu og samstilltu stjórnendateymi, í takt við stefnu, menningu og markmið fyrirtækisins.
Avians er á spennandi vegferð með sterkan hóp stjórnenda og fagfólks innanborðs. Við leitum að jákvæðum og áhrifaríkum leiðtoga sem nýtur þess að vinna með fólki, byggja upp traust og vinna að sameiginlegum árangri.
- Ábyrgð á fjármálastjórn og fjárhagslegri stefnumótun félagsins
- Gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana og eftirfylgni með þeim
- Greining og miðlun stjórnendaupplýsinga sem styðja ákvarðanatöku
- Ábyrgð á uppgjörum, skýrslugjöf og samskiptum við endurskoðendur
- Fjárstýring, áhættustýring og áframhaldandi þróun verkferla og innra eftirlits
- Virk þátttaka í framkvæmdastjórn og mótun stefnu félagsins
- Leiðtogahlutverk í uppbyggingu menningar, samvinnu og árangurs innan fyrirtækisins
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem í viðskiptafræði, fjármálum eða tengdum greinum
- Reynsla af fjármálastjórnun og stefnumótandi stjórnendahlutverki
- Sterk greiningarhæfni og viðskiptaskilningur
- Reynsla af stjórnun fólks og teymisvinnu
- Frumkvæði, jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni
- Hæfni til að leiða breytingar og styðja við vöxt fyrirtækis
Enska
Íslenska
