Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Félagsráðgjafi í móttöku flóttafólks

Borgarbyggð auglýsir eftir félagsráðgjafa til starfa við móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Fólkið mun dvelja á Bifröst í Borgarfirði meðan útvegað er varanlegra búsetuúrræði. Dvöl á Bifröst verður að hámarki 12 vikur. Um getur verið að ræða allt að 150 manns, börn og fullorðna. Félagsráðgjafinn mun starfa í öflugu þverfaglegu teymi. Starfið felst í móttöku flóttafólksins og þjónustu við það, s.s. félagslegri aðstoð og fjárhagsaðstoð. Félagsráðgjafi veitir ráðgjöf og greinir fólknar þarfir skjóstæðinga, s.s. fyrir aðstoð sérfræðinga, skipuleggur hana og samhæfir í samvinnu við verkefnastjóra og aðra starfsmenn verkefnisins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tímabundna ráðningu í þrjá mánuði.

Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
þekking og reynsla af vinnu með flóttafólki æskileg.
Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
Fáist ekki félagráðgjafi í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag móttöku fólskins í þverfaglegu teymi.
Meðferð málefna einstaklinga og hópsins í heild.
Greining á þörfum einstaklinga og hópsins.
Skipulag félagslegrar þjónustu.
Umsjón með framfærsu/fjárhagsaðstoð.
Skipuleggur þjónustu sérfræðina fyrir einstaklinga og hópinn.
Fríðindi í starfi
Möguleiki á húsnæði á staðnum
Auglýsing birt23. mars 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Félagsráðgjafi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar