

Deildarstjóri á heimili fyrir fatlað fólk
Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir deildarstjóra í íbúðakjarna fyrir fólk með geðrænar áskoranir, staðsett í efri byggðum Kópavogs. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Deildarstjóri á heimili fyrir fatlað fólk er hluti af stjórnendateymi íbúðakjarnans og tekur þátt í faglegu starfi með yfirmanni og stjórnendateymi. Deildarstjóri hefur umsjón með framkvæmd þjónustu við íbúa og vinnur með þeim á grundvelli áætlana.
Starfið felur í sér víðtæk verkefni sem tryggja að íbúar fái viðeigandi, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að bættum lífsgæðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með framkvæmd þjónustu og faglegri stefnu í samráði við forstöðumann.
- Veitir faglegan stuðning við teymisstjóra og starfsfólk og tekur þátt í faglegu starfi stjórnendateymis heimilisins.
- Skipuleggur dagleg verkefni, vaktir og þjálfun starfsfólks í samráði við forstöðumann.
- Tryggir að þjónusta, skráning og verklag sé í samræmi við þjónustuáætlanir, verkferla, faglega stefnu og gildandi lög um þjónustu við fatlað fólk.
- Leiðbeinir íbúum við athafnir daglegs lífs og veitir þeim einstaklingsmiðaðan stuðning sem stuðlar að bættum lífsgæðum.
- Heldur utan um handbækur, verklýsingar, atvikaskráningar, tölfræði og greiningu gagna ásamt því að greina þarfir og vinna að úrbótum á faglegu verklagi.
- Tryggir viðeigandi þjónustu og íhlutun hvað varðar heilsufar íbúa, eftirfylgni og skráningu.
- Tryggir virk samskipti við íbúa, samstarfsfólk, aðra fagaðila, heilbrigðisstarfsfólk, vinnu- og virkniúrræði sem og aðstandendur íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) í þroskaþjálfun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er skilyrði, kostur ef reynsla af starfi með fólki með geðrænar áskoranir og fíknivanda.
- Þekking á leiðandi hugmyndafræði í þjónustu við fatlað fólk, svo sem sjálfstæðu lífi og þjónandi leiðsögn, ásamt þekkingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk.
- Þekking á lögum um þjónustu við fatlað fólk.
- Reynsla af teymisvinnu og hæfni til að leiðbeina og þjálfa starfsfólk.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Ökuréttindi eru æskileg.
- Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Aðrar upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á Velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Helga Óskarsdóttir, forstöðumaður, í tölvupósti: [email protected].
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar og jafnréttislögum við ráðningar.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningavef Kópavogs.
Íslenska
