

Ertu fjármálastjóri framtíðarinnar?
Ertu upprennandi fjármálastjóri framtíðarinnar?
Við hjá Deloitte leitum eftir öflugum og nýútskrifuðum einstaklingum í teymi Viðskiptalausna.
Um Viðskiptalausnir
Sérfræðiteymi Viðskiptalausna gefur fyrirtækjum aðgang að fjölbreyttu úrvali fagfólks til að styrkja og viðhalda meginstarfsemi fyrirtækja, hvort sem er í formi útvistunar á ferlum innan fjármálsviða eða ráðgjafar og tímabundnum verkefnum. Starfið sem hér um ræðir heyrir undir þjónustulínu Viðskiptalausna, Tímabundnar ráðningar, þar sem fyrirtæki geta fengið ráðgjafa Deloitte til sín sem tímabundna fjármálastjóra, verkefnastjóra, sérfræðinga eða bókara. Sérfræðingar okkar geta einnig aðstoðað fyrirtæki sem hluti af stærra teymi í átaksverkefnum, hagræðingum og sjálfvirknivæðingu ferla innan fjármálasviða. Hér getur þú lesið meira um Viðskiptalausnir.
Hæfniskröfur
Við erum að leita að nýlega útskrifuðum kandídötum á sviði viðskipta-, hagfræði- eða verkfræðigreina.
- Reynsla af reikningshaldi eða forritun er kostur
- Mikilvægt er að þú brennir fyrir því að þróast innan fagsins
- Þú nýtur þess að vinna í teymi, en getur líka unnið sjálfstætt séu verkefnin þess eðlis
- Þú sýnir frumkvæði, ert lausnamiðuð/lausnamiðaður með mjög góða samskipta- og aðlögunarhæfni og ert opin/n fyrir nýjum áskorunum
Við bjóðum upp á
Með einstakri menntun, krefjandi verkefnum og hvetjandi kúltúr innan Viðskiptalausna mótum við framtíðarleiðtoga í fjármálum. Við bjóðum upp á þróunarprógram til að undirbúa þig undir það hlutverk. Þar á meðal eru námskeið með áherslu á verkefnastjórnun, forystu og tæknilega hæfni þar sem áhersla er lögð á persónulega færni.
Starfsþróunin þín
Hjá Deloitte leggjum við áherslu á að hjálpa starfsfólki að bera kennsl á styrkleika sína og nýta þá í starfi. Með lærdómi og stuðningi innan fyrirtækisins og starfsþróunarnámskeiða á Íslandi og erlendis, færðu fjölbreytt tækifæri til að þróast í starfinu þínu.
Hvernig sækir þú um
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Deloitte, [email protected].
Viltu hafa áhrif?
Á hverjum degi munu störf þín hafa áhrif á meðan þú dafnar í góðu starfsumhverfi sem einkennist af þátttöku, samvinnu og árangi. Við leitumst ekki bara við að finna lausnir. Við viljum hafa áhrif sem skapa jákvæð og mikilvægan mun fyrir fólkið í kringum okkur, viðskiptavini og samfélagið. Hjá Deloitte munt þú fá ótakmarkaða möguleika til að ná árangri og finna styrkleika þína.
Við hlökkum til að fá umsóknina þína!











