
Ert þú snillingur í höndunum og getur lagað nánast allt?
Álkerfi / Gluggar og garðhús leita að öflugum þjónustu- og viðgerðarmanni!
Við leitum að einstaklega handlögnum, úrræðagóðum og jákvæðum einstaklingi sem hefur gaman af því að leysa verkefni, finna lausnir og skilja við ánægða viðskiptavini.
Þetta er starf fyrir manneskju sem hefur hendurnar rétt skrúfaðar á, sér lausnir þar sem aðrir sjá vandamál og leggur metnað sinn í vönduð vinnubrögð.
Helstu verkefni
-
Viðgerðir, viðhald og lagfæringar á sólskálum og svalalokunum.
-
Glerskipti og ísetning glugga og hurða.
-
Stillingar, bilanagreining og frágangur.
-
Fjölbreytt smáverk og sérverkefni hjá viðskiptavinum.
-
Þjónusta og bein samskipti við viðskiptavini.
Hæfniskröfur
-
Viðkomandi verður að tala íslensku og geta átt góð og skýr samskipti við viðskiptavini á íslensku.
-
Iðnmenntun, helst í húsasmíði eða skyldum greinum, er æskileg.
-
Einstaklega handlagnir einstaklingar með mikla verklega reynslu koma einnig til greina án formlegrar iðnmenntunar.
-
Reynsla af viðgerðum, uppsetningum og fjölbreyttum handverksverkefnum.
-
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
-
Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
-
Frumkvæði, útsjónarsemi og lausnamiðuð hugsun.
-
Ökuréttindi.
Við bjóðum
-
Fjölbreytt og sjálfstætt starf þar sem engir tveir dagar eru eins.
-
Skemmtilegt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
-
Tækifæri til að nýta þekkingu, reynslu og hugvit.
-
Samkeppnishæf laun fyrir réttan einstakling.
-
Starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki í þróun.
-
Viðgerðir, viðhald og lagfæringar á sólskálum og svalalokunum.
-
Glerskipti og ísetning glugga og hurða.
-
Stillingar, bilanagreining og frágangur.
-
Fjölbreytt smáverk og sérlausnir hjá viðskiptavinum.
-
Þjónusta og bein samskipti við viðskiptavini.
Iðnmenntun er kostur – en ef þú ert algjör snillingur í höndunum viljum við líka heyra frá þér!
Íslenskukunnátta er hins vegar skilyrði fyrir ráðningu.
Íslenska




