
Gildi
Gildi er fjölmennasti lífeyrissjóður landsins með um 26 þúsund lífeyrisþega og 53 þúsund greiðandi sjóðfélaga en yfir 250.000 einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum. Heildareignir sjóðsins námu 916 milljörðum króna um síðustu áramót.
Áhersla er lögð á að sjóðurinn hafi á að skipa hæfu starfsfólki sem vinnur sem ein heild í góðu starfsumhverfi. Gildi hefur sett sér stefnu í starfsmanna- og jafnlaunamálum og hefur hlotið jafnlaunavottun.
Eignastýring
Gildi-lífeyrissjóður leitar eftir sérfræðingi til starfa í eignastýringu sjóðsins. Leitað er að framsýnum og metnaðarfullum einstaklingi sem verður hluti af hópi sérfræðinga sem vinna að verkefnum tengdum fjárfestingum og uppbyggingu eignasafna sjóðsins. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri greiningarhæfni, metnaði og vilja til að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni auk þess að geta starfað sjálfstætt sem og í teymi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður eignastýringar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppbygging og utanumhald eignasafna sjóðsins.
- Greining markaða og fjárfestingakosta innanlands sem utan, m.a. út frá ávöxtun, áhættu og sjálfbærni.
- Arðsemis- og áhættumat á fjárfestingum og eignasafni sjóðsins.
- Fjárfestingar og eftirfylgni þeirra.
- Skýrslugerð og upplýsingagjöf til stjórnenda og stjórnar.
- Samskipti við innlenda og erlenda aðila á fjármálamarkaði.
- Þátttaka í umbóta- og framþróunarverkefnum.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Verðbréfaréttindi eru kostur.
- Góð greiningarhæfni og geta til að setja fram niðurstöður með skipulögðum hætti.
- Frumkvæði, framsýni og metnaður.
- Sjálfstæði, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
- Jákvætt viðmót, hæfni í mannlegum samskiptum og færni í teymisvinnu.
- Þekking og áhugi á sjálfbærum og ábyrgum fjárfestingum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, jafnt í töluðu sem rituðu máli.
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri (Account Manager)
Snæland Grímsson ehf

Bókari
Deloitte

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Landsbankinn

Ráðgjafi í þjónustuteymi
dk hugbúnaður ehf.

Nefndarmaður í yfirskattanefnd
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu
Gildi

Viltu selja virði?
Advania

Sérfræðingur á fjármálasviði
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Ráðgjafi á sviði kjaramála
Félag iðn- og tæknigreina

Markaðsstjóri
Hagvangur

STÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI
Travel Connect

Associate Accountant
CCP Games