
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.

Eftirlit brunakerfa
Securitas leitar að rafmögnuðum starfskrafti til að takast á við fjölbreytt verkefni sem við kemur brunavörnum og öryggismálum.
Starfið felst í úttektum á brunaviðvörunarkerfum fyrir viðskiptavini okkar, með eftirliti og prófun kerfa.
Ef þú..
- Hefur reynslu og/eða menntun í rafiðnaði.
- Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hefur metnað og frumkvæði til að takast á við krefjandi verkefni.
- Býrð yfir íslenskukunnáttu, bæði í riti og máli.
..þá erum við að leita að þér!
Í boði er fullt starf þar sem er unnið alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00. Starfið hentar öllum kynjum með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með 23. október næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Íris Guðnadóttir, deildarstjóri úttekta, í síma 580-7000.
Auglýsing birt14. september 2023
Umsóknarfrestur23. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFrumkvæðiHreint sakavottorðMetnaðurÖkuréttindiRafeindavirkjunRafvirkjunSamviskusemiStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Commissioning Manager
atNorth

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Afgreiðslustarf í Farmasíu apóteki
Farmasía

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins