
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Stefna Sóltúns er að bjóða heilbrigðisþjónustu í fremstu röð.
Markmið okkar er að skapa hlýlegt og nærandi samfélag þar sem þjónustuþegar og starfsfólk upplifir öryggi og vellíðan.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi umönnun, persónulega og faglega þjónustu, fjölbreyttar lausnir, jákvæða forystu, gróskuhugarfar og framþróun.
Sóltún heilbrigðisþjónusta rekur fjölbreytta heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða:
Sóltún Reykjavík – hjúkrunarheimili, er staðsett í Sóltúni 2, 105 Reykjavík
Sóltún Sólvangi - hjúkrunarheimili, er staðsett á Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Sóltún Heilsusetur – endurhæfing, er staðsett á Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún Heima – heimaþjónusta, hefur aðsetur á Sólvangi í Hafnarfirði
Dagdvöl og dagþjálfun Sóltúns er staðsett á Sólvangi í Hafnarfirði
Skrifstofur Sóltúns eru staðsettar í Norðurturni, Hagasmára 3, 201 Kópavogi.

Deildarstjóri sjúkra- og iðjuþjálfunar
Við leitum að öflugum deildarstjóra fyrir sjúkra- og iðjuþjálfun á Sóltún Sólvangi sem brennur fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa!
Deildarstjóri fer fyrir sjúkra- og iðjuþjálfun og félagsstarfi og ber ábyrgð á faglegu starfi, skipulagningu og þróun þjónustunnar. Viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk, íbúa og aðstandendur þeirra við að tryggja einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að bættri andlegri, félagslegri og líkamlegri líðan og færni. Deildarstjóri tilheyrir stjórnendahópi Sóltúns og er um nýtt starf að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og styðja teymi í daglegu starfi á hjúkrunarheimili, Heilsusetri og dagdvölum
- Ábyrgð og yfirsýn yfir dagskrá
- Ábyrgð á framkvæmd RAI mats iðju-og sjúkraþjálfunar
- Tryggja pöntun viðeigandi hjálpartækja
- Þátttaka í fræðslu varðandi málefni sjúkra-og iðjuþjálfunar
- Móta og innleiða verklag og þjónustu á breytingartímum
- Þátttaka í stefnumótun og umbótaverkefnum til að efla gæði þjónustunnar
- Virkan þátt í stjórnendateymi Sóltún Sólvangi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilt starfsleyfi sem sjúkra- eða iðjuþjálfi
- Reynsla af starfi með öldruðum
- Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun er kostur
- Reynsla af notkun RAI mælitækis er kostur
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fatapeningur
- Velferðartorg
Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (9)

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraþjálfari óskast til starfa í Ási Hveragerði
Ás dvalar og hjúkrunarheimili

Sjúkraþjálfarar óskast á nýja sjúkraþjálfunarstofu
Vera Sjúkraþjálfun ehf.

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali

Sjúkraþjálfari í heilsueflandi móttöku
Heilsugæslan Kirkjusandi

Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali