Deildarstjóri sálfélagslegrar þjónustu
Laus er til umsóknar 100% ótímabundin staða deildarstjóra sálfélagslegrar þjónustu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Framundan eru spennandi verkefni við innleiðingu nýrrar stefnu HSS sem meðal annars leggur áherslu á þróun teymisvinnu innan heilsugæslusviðs og uppbyggingu geðheilsuteymis sem krefst lausnamiðaðrar hugsunar, nýsköpunar og samstarfs. Um þessar mundir á sér stað mikil uppbygging innan stofnunarinnar sem felur meðal annars í sér stórbætta vinnuaðstöðu teymis sálfélagslegrar þjónustu.
Ábyrgðasvið stjórnenda á HSS er þrískipt, fjárhagsleg, fagleg og á sviði mannauðs.
Á HSS starfa sálfræðingar og geðhjúkrunarfræðingur sem sinna geðþjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Við bjóðum upp á fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt starf í þverfaglegu umhverfi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki.
Menntunar- og hæfniskröfur
Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
Umfangsmiklil þekking og reynsla af greiningu geðraskana og gagnreyndum meðferðum, hjá fullorðnum og börnum er skilyrði.
Leiðtogahæfni.
Lögð er áhersla á jákvætt viðhorf og áhuga á fjölbreyttum, krefjandi verkefnum.
Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi hæfileika á sviði samskipta og samvinnu.
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu, handleiðslu og stjórnun.
Þekking á breytingastjórnun er kostur.
Áhugi og geta til rannsóknarvinnu er æskileg.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hefur umsjón með sálfræði- og geðteymum og þjónustu þeirra.
Ber ábyrgð á faglegri stjórnun og handleiðslu sálfræðinga í klínískri vinnu með börnum og fullorðnum.
Kemur að sálfræðilegri greiningu og meðferð skjólstæðinga.
Ber ábyrgð á gæða- og verklagsstarfi, stefnumótun og framtíðarsýn varðandi þjónustu sálfræðinga.
Samræmir og skipuleggur störf deildarinnar og er leiðtogi teymisins. Þekkir aðferðir mannauðsstjórnunar og beitir þeim við daglega stjórnun.
Er tengiliður við samstarfsaðila þjónustunnar, bæði innan stofnunar og utan.