Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Deildarstjóri í þjónustukjarna - Akraneskaupstaður

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar leitar eftir öflugum deildarstjóra í 80-100% starf í þjónustukjarna fyrir fólk með fötlun. Í þjónustukjarna er fötluðu fólki með langvarandi stuðningsþarfir veitt aðstoð og stuðningur til sjálfstæðs lífs og félagslegrar þátttöku í samfélaginu. Akraneskaupstaður er ört vaxandi sveitarfélag með um 8600 íbúa og er meðal stærstu vinnuveitenda á Akranesi en hjá bænum starfa tæplega 800 manns. Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og spennandi starf í starfsumhverfi sem leggur áherslu á jákvæðni, metnað og víðsýni í þjónustu við íbúa.

Auglýst er eftir þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða öðrum fagaðila með háskólamenntun í félags- eða heilbrigðisvísindum sem nýtist í starfi. Um er að ræða 80-100% stöðu í þjónustukjarna fyrir fólk með fötlun.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Unnið er eftir hugmyndafræði um Þjónandi leiðsögn (Gentle Teaching) og valdeflingu. Starfsmenn þurfa að tileinka sér þessa hugmyndafræði og vinna eftir henni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirsýn yfir stuðningsþarfir íbúa og bera ábyrgð á skipulagningu og eftirfylgd þjónustu.
  • Gerð einstaklingsáætlana, eftirfylgd og endurskoðun  
  • Persónulegur stuðningur við íbúa og aðstoð við athafnir daglegs lífs. 
  • Fagleg leiðsögn, fræðsla og stuðningur til starfsmanna.
  • Samskipti við utanaðkomandi fagaðila og stofnanir.
  • Þátttaka í þróun og mótun þjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í þroska-, iðjuþjálfa- eða félags- og heilbrigðisvísindum.
  • Jákvæð reynsla af vinnu með fötluðu fólki.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og fagleg framkoma.
  •  Hæfni til að bregðast við krefjandi aðstæðum og lausnamiðuð viðhorf
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnu.
  •  Góð íslenskukunnátta.
  •  Ökuréttindi og vilji til að keyra með notendum þjónustunnar.
  • Hreint sakavottorð.
  • Almenn tölvukunnátta, þekking á skráningarkerfum og Office-forritum. 
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar