

Almenn starfsumsókn - Þorláksskóli
Þorláksskóli er nýr sérskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa haustið 2026 í Garðabæ. Við leitum að áhugasömu og metnaðarfullu starfsfólki sem vill taka þátt í að byggja upp faglegt, öruggt og styðjandi skólaumhverfi þar sem hvert barn fær að vaxa á sínum forsendum.
Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir starf sitt á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun þar sem öryggi, tengsl og skynúrvinnsla mynda grunn að námi og þroska. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, fyrirsjáanlegt og stuðningsríkt umhverfi og traust tengsl sem styðja þátttöku, vellíðan og sjálfstæði nemenda.
Við leitum að fólki í fjölbreytt störf, meðal annars:
• Þroskaþjálfum
• Stuðningsfulltrúum
• Starfsfólki í frístund og lengdri viðveru
• Fagfólki með reynslu af skynúrvinnslu og taugaþroskavænni nálgun
• Einstaklingum með áhuga og reynslu af starfi með einhverfum börnum
Við leitum að fólki sem:
• Ber virðingu fyrir fjölbreytileika og styrkleikum einhverfra barna
• Hefur jákvætt viðhorf, þolinmæði og góða samskiptahæfni
• Getur unnið í teymi og tekið þátt í uppbyggingu nýs skólastarfs
• Sýnir frumkvæði, fagmennsku og skipulagshæfni
• Hefur áhuga á að læra og þróast í starfi
Við leggjum ríka áherslu á faglegt starfsumhverfi, stuðning við starfsfólk og vinnustaðamenningu þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi.
Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessari vegferð með okkur hvetjum við þig til að senda almenna umsókn.
Sendið ferilskrá og stutt kynningarbréf
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2026.
Nánari upplýsingar veitir Vigdís Gunnarsdóttir, [email protected]
Heimasíða: www.thorlaksskoli.is
Íslenska










