
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Deildarstjóri í Klettaborg
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi, sem er þriggja deilda leikskóli í afar fallegu umhverfi. Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í faglegu leikskólastarfi þar sem þroski og farsæld barna er í fyrirrúmi.
Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.
Einkunnarorð leikskólans eru sjálfstæði, virðing og gleði – SAMAN GETUM VIÐ MEIRA.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennararéttindi
Reynsla af starfi deildarstjóra og stjórnun í leikskóla er æskileg
Hæfni, lipurð, umburðarlyndi og heiðarleiki í mannlegum samskiptum
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samstarfsvilji
Skipulagshæfni og sjálfstæði
Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
Góð tölvukunnátta
Gott vald á íslensku máli og færni í ræðu og riti (C2)
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
Ber ábyrgð á að að unnið sé eftir aðalnámsskrá leikskóla og skólanámsskrá leikskólans
Starfar í stjórnendateymi leikskólans og sér um miðlun upplýsinga innan deildar, milli deilda og við leikskólastjóra
Auglýsing birt27. mars 2023
Umsóknarfrestur12. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 101, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiJákvæðniLeiðtogahæfniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hnoðraból
Borgarbyggð

Umsjónarkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð
Sambærileg störf (7)

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Deildarstjóri óskast á íbúðarkjarna
Ás styrktarfélag

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Deildarforseti í arkitektúr við LHÍ
Listaháskóli Íslands

Deildarstjóri - velkomin(n) í hópinn
Heilsuleikskólinn Kór