
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Deildarstjóri í íbúðarkjarna
Við á velferðarsvið Kópavogs leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til að taka að sér starf deildarstjóra í íbúðkjarna. Í kjarnanum búa fjórir einstaklingar. Starf deildarstjóra felst meðal annars í því að taka þátt í að skipuleggja og leiða faglegt starf í samvinnu við forstöðumann
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfa, mennta- og félagsvísinda.
Reynsla af starfsmannahaldi æskileg.
Gerð er krafa um haldgóða reynslu af starfi með fötluðu fólki.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann.
Gerð þjónustuáætlana
Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Auglýsing birt17. nóvember 2020
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti
Samhjálp

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla, afleysing í eitt ár.
Árbæjarskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Velferðarsvið – Teymisstjóri í Barna- og fjölskylduteymi
Reykjanesbær

Viltu koma og starfa með geggjuðum hóp í Austurkór
Austurkór