Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Deildarstjóri hjá leikskólanum Álfheimum

Leikskólinn Álfheimar auglýsir eftir deildarstjóra.

Leitað er að deildarstjóra með leiðtogahæfileika sem eru tilbúin að taka þátt í að leiða áfram og þróa metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans þar sem samvinna, traust og gleði ríkir. Í leikskólanum Álfheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt því er leikskólinn einnig grænfánaleikskóli sem leggur áherlsu á útinám.

Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og situr í stjórnendateymi leikskólans. Hann starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Áherslur Álfheima eru á leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Virðing, hlýja og traust.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum. 
  • Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra. 
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum. 
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni.
  • Situr foreldrafundi, starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.  
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Reynsla, hæfni og áhugi á starfi með börnum.  
  • Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg. 
  • Reynsla af leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika
Auglýsing birt17. nóvember 2025
Umsóknarfrestur27. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Sólvellir 6, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar