
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Deildarstjóri hagdeildar hjá Árborg
Sveitarfélagið Árborg leitar eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi með brennandi áhuga á greiningu, úrvinnslu og framsetningu hagupplýsinga til að taka að sér deildarstjórastöðu hagdeildar. Hagdeildin heyrir undir fjármálasvið og vinnur að þróun greininga og upplýsingagjafar í ört vaxandi sveitarfélagi. Mikil áhersla er lögð á stafræna þróun í samstarfi við nýja upplýsingatæknideild Árborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, viðskiptafræði eða sambærilegt
Góð þekking og reynsla í fjárhagsbókhaldi
Færni í framsetningu tölfræðilegra upplýsinga
Krafa er gerð um góða tölvufærni
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Þekking og reynsla af notkun Navision bókhaldskerfis er kostur
Brennandi áhugi á talna- og gagnavinnslu
Frumkvæði og samstarfshæfni í teymisvinnu
Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti er kostur
Þjónustulund, góð framkoma og jákvætt viðmót
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á þróunarstarfi og markmiðum hagdeildar
Greiningar á rekstri sveitarfélagsins og stofnana þess
Eftirlit með rekstri og framfylgd fjárhagsáætlana
Skýrslugerð, ráðgjöf og fræðsla til stjórnenda er varðar fjármál, rekstur og hagtölur
Undirbúningur og gerð fjárhagsáætlana
Undirbúningur og gerð ársreiknings
Auglýsing birt31. mars 2021
Umsóknarfrestur14. apríl 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu
Kvika eignastýring hf.

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar
Landspítali

Sérfræðingur í launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Bókari
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Skrifstofustjóri
Rúko

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Fjármálastjóri FSÍ
Fimleikasamband Íslands

Sérfræðingur í fjármálum
Abler - Sport Matters

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun