Leikskólinn  Gullborg
Leikskólinn Gullborg

Deildarstjóri Gullborg

Markmið okkar er að vera réttindaskóli í samstarfi við UNICEF ! Viltu vera með?

Við á leikskólanum Gullborg leitum af öflugum, metnaðarfullum og skapandi deildarstjóra til að vinna með 2-3 ára börnum. Leikskólinn er fimm deilda og er í góðu samstarfi við tvo aðra leikskóla í vesturbænum. Við leggjum sérstaka áherslu á félagsfærni og sjálfseflingu sem eru tveir af lykilþáttum menntastefnu Reykjavíkurborgar. Við erum þátttakendur í mjög spennandi verkefni með Háskóli Íslands og Skóla- og frístundasviði sem felst í því að auka þátttöku barna í daglegu starfi í gegnum leikinn. Innlögn að verkefninu er í formi verkfærakistu sem starfsmenn móta saman. Einnig stefnum við á að verða UNICEF réttindaskóli með áherslu á lýðræði og réttindi barna. Þetta innleiðingarferli er samstarfsverkefni á milli okkar og fimm annarra leikskóla, menntavísindasviðs, Skóla og frístundarsviðs og UNICEF.
Framundan er spennandi tími uppfullur af ævintýrum og það væri frábært að fá þig í hópinn!

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Frumkvæði í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Almenn tölvukunnátta Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Fríðindi í starfi
Reykjavíkurborg hefur innleitt styttingu vinnuvikunnar. Auk þess standa ýmis fríðindi starfsfólki til boða s.s. sundkort, menningarkort, heilsustyrkur, afsláttur af dvalargjaldi, samgöngusamningur, frír hádegismatur og forgangur í leikskóla.
Auglýsing birt13. júní 2022
Umsóknarfrestur27. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Rekagrandi 14, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar