
Umhverfis- og skipulagssvið
Á Umhverfis og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem eiga að auðga mannlífið í borginni.
Nánar má lesa um sviðið hér: https://reykjavik.is/umhverfis-og-skipulagssvid
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs býr yfir einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir og gegnir lykilhlutverki í því að gera Reykjavík að enn betri borg. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg.

Deildarstjóri eftirlitsmála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling til að leiða nýja deild eftirlitsmála. Undir deildina fellur skilmálaeftirlit byggingarfulltrúa, eftirlit með afnotum borgarlands, eftirlit með framkvæmdarleyfum og annað tilfallandi eftirlit með borgarlandinu. Við leitum að einstaklingi með ríka forystu- og samskiptahæfileika, frumkvæði til að þróa nýjar lausnir og vilja til að leiða breytingar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu og góða þjónustu. Næsti yfirmaður deildarstjóra er skrifstofustjóri stjórnsýslu, gæða og eftirlits.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði, lögfræði, viðskipta- eða rekstrarfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði stjórnunar er kostur.
Leiðtogahæfileikar.
Frumkvæði og faglegur metnaður.
Mjög góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu.
Reynsla af verkefnastjórnun og/eða eftirliti er kostur.
Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýrir deild eftirlitsmála og er næsti yfirmaður þeirra sérfræðinga og eftirlitsmanna sem starfa á deildinni.
Ber ábyrgð á daglegri skipulagningu og stýringu verkefna deildarinnar.
Tekur þátt í gerð fjárhagsáætlunar er varðar starfsvið.
Tryggir að framkvæmd efitlitsmála sé í samræmi við stefnu, leiðarljós og markmið umhverfis- og skipulagssviðs.
Sinnir verkefnum á sviði eftirlitsmála í samræmi við samþykkt gögn, lög, reglugerðir og staðla.
Heldur utan um samskipti sem tengjast eftirlitinu, við framkvæmdaraðila og aðra hagsmunaaðila innan sviðs og utan.
Fylgir eftir fyrirmælum um úrbætur mála með formlegum samskiptum við framkvæmda- og ábyrgðaraðila.
Sér um yfirferð ýmissa gagna og gerð umsagna í tengslum við leyfisumsóknir og framkvæmdir.
Auglýsing birt13. nóvember 2021
Umsóknarfrestur29. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Hönnun umferðarmannvirkja
EFLA hf

Product Designer / Engineer | Össur
Embla Medical | Össur

Deildarstjóri tæknirekstrar
RÚV

Teymisstjóri launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálateymi
Reyktal þjónusta ehf.

Vatnsaflssérfræðingur
EFLA hf

Forstöðumaður fasteigna
Háskólinn í Reykjavík

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum
Íslandssjóðir

Fjölbreytt verkefni á sviði löginnheimtu
Motus

Fulltrúi á fjármálasviði / Bookkeeper
Rapyd Europe hf.

Sölufulltrúi | Business Development Representative
Teya Iceland