Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Deildarstjóri bygginga- og tæknilausna

Fagsölusvið Húsasmiðjunnar leitar að kraftmiklum leiðtoga í starf deildarstjóra bygginga- og tæknilausna.

Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri bygginga og tæknilausna og heyrir beint undir framkvæmdastjóra fagsölusviðs. Um nýtt starf er að ræða og spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að taka þátt í frekari uppbyggingu á örum og spennandi markaði.

Á fagsölusviði starfa öflugir og reynslumiklir einstaklingar sem þjónusta stærstu viðskiptavini Húsasmiðjunnar og aðra aðila í stærri framkvæmdum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stýring og rekstur deildar.
  • Stýring og ábyrgð á vöruþróun bygginga- og tæknilausna.
  • Yfirumsjón og ábyrgð á sölu tæknilegra lausna er varða glugga, stálgrindarhús og annara byggingalausna.
  • Ábyrgð á stærri útboðum til verktaka, ríkis og sveitarfélaga.
  • Útreikningar og eftirfylgni tilboða.
  • Tengsl og samskipti við erlenda birgja.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. byggingatæknifræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
  • Þekking og/eða reynsla úr byggingariðnaði er æskileg.
  • Reynsla af verkefnastjórnun.
  • Nákvæm vinnubrögð og talnagleggni.
  • Ríkt frumkvæði og drifkraftur.
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góð almenn tölvukunnátta og reynsla af notkun helstu tölvuforrita.
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt21. mars 2024
Umsóknarfrestur8. apríl 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar