

Deildarstjóri á yngstu deild
Leikskólinn Núpur auglýsir eftir deildarstjóra í 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3. Í Núpi starfar stór hópur leikskólakennara.
Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Við leggjum áherslu á Fjölgreindir í leikskólastarfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu s.s. virðing fyrir einstaklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.
Fjölgreindir í leikskólastarfi hjálpa okkur að sjá hvernig hvert barn lærir best og hvað við getum gert til að auðvelda því að nýta allar greindir til náms. Í leikskólanum eru börn með mismunandi atgervi og frá ólíkum menningarheimum og leitast er við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.
Upplýsingar um leikskólann má finna á http://nupur.kopavogur.is/











