Icepharma
Icepharma
Icepharma

Deildarstjóri á Heilbrigðissviði

Icepharma leitar að metnaðarfullum liðsmanni til að leiða söluhóp á Heilbrigðissviði.

Ef þú ert leiðtogi með reynslu af rekstri og markaðsstarfi á heilbrigðismarkaði, þá gætum við verið að leita að þér til að taka við spennandi starfi sem deildarstjóri hjá Icepharma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun, starfsmannamál, stefnumótun og rekstur söluhóps sem samanstendur af fimm starfsmönnum
  • Gerð og eftirfylgni sölu- og markaðsáætlana
  • Myndun og viðhald viðskiptatengsla við heilbrigðisstofnanir og -starfsfólk
  • Samskipti við erlenda birgja
  • Viðskiptaþróun
  • Verkefnastjórn og þátttaka í útboðum
  • Skipulagning og þátttaka í fundum og ráðstefnum, hérlendis og erlendis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði heilbrigðisvísinda, t.d. hjúkrunarfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum er mikill kostur
  • Rekstrarlæsi, góð greiningarhæfni og hæfni til að setja fram niðurstöður og tillögur með faglegum hætti
  • Haldgóð reynsla af markaðs- og sölustarfi með heilbrigðisvörur eða lyf
  • Mikill drifkraftur og frumkvæði
  • Jákvæðni og framúrskarandi færni í tengslamyndun og mannlegum samskiptum
  • Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Staðsetning
Lyngháls 13/Krókh 14 13R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar