Leikskólinn Brekkuborg
Leikskólinn Brekkuborg

Deildarstjóri - 4ra-6 ára börn

Deildarstjóri óskast til starfa við leikskólann Brekkuborg. Brekkuborg er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi. Við leggjum áherslu á lýðræði, sjálfstæði barna og umhverfismennt. Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfi skólans. Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð. Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar.
Einkunnarorð skólans eru: Vinátta - Virðing - Lýðræði.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Færni til að nýta sér tölvur í starfi
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni deildarstjóra eru að halda utan um starf deildar með aðkomu starfsmanna og skipuleggja starfið í samstarfi við aðra stjórnendur. Deildarstjóri er ábyrgur fyrir foreldrasamskiptum og velferð barna og starfsfólks deildarinnar. Hann er einnig ábyrgur fyrir samskiptum við verkefnastjóra og sérkennslustjóra. Einnig sér deildarstjóri um að halda utan um mönnun sinnar deildar í tengslum við styttingu vinnuvikunnar.
Fríðindi í starfi
Samgöngustyrkur
Menningarkort # bókasafnskort
Fríðindi í starfi:
Heilsuræktarstyrkur
Sundkort
36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Auglýsing birt16. júní 2022
Umsóknarfrestur30. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hlíðarhús 1, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar