Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Forfallakennari óskast til starfa við Árbæjarskóla


Forfallakennari óskast til starfa við Árbæjarskóla á yngra- og unglingastig.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 730 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög góðan kennarahóp í góðu og jákvæðu umhverfi. Um er að ræða tilfallandi forföll svo og forföll í lengri tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og árganga-/fagteymi.
  • Vinna að þróun skólastarfs með skólastjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur27. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar