
Deildarstjóri
Leikskólinn Mánaland óskar eftir að ráða leikskólakennara í starf deildarstjóra. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að ganga til liðs við hóp faglegs starfsfólks, taka þátt í að þróa starfið ásamt því að vera hluti af samfélaginu. Við hugsum stórt og erum að flytja inn í nýjan 60 barna leikskóla í ágúst.
Leikskólinn Mánaland er heilsueflandi leikskóli staðsettur í Vík í Mýrdal. Lögð er áhersla á holla og góða næringu auk góðrar almennrar lýðheilsu. Mánaland er fjölmenningarlegur leikskóli og teljum við að öll börn geti notið sín á sínum forsendum. Styrkleiki leikskólans felst í fjölbreytni; það er í lagi að vera ólíkur öðrum. Við leikum, lærum og eigum samskipti án fordóma. Lögð er áhersla á að efla samvinnu og samkennd í barnahópnum auk þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd allra barna þannig að þau geti sýnt styrkleika sína og þekkingu.
Sveitarstjórn samþykkti nýlega breytingar í leikskólaþjónustu með það að markmiði að bæta enn frekar náms- og starfsumhverfi leikskólans þannig að tryggja megi stöðugleika í starfinu, farsæld barna og velferð og vellíðan starfsfólks ásamt því að gera starfsumhverfi leikskólans aðlaðandi. Breytingarnar sem verða innleiddar í haust eru meðal annars að hámarksvistunartími barna verði 36 klst. á viku, tveir skráningardagar verða innleiddir vegna foreldraviðtala, vinnustytting starfsfólks verður tekin út með lokun skólans, fjórir dagar verða sérstaklega skilgreindir vegna undirbúnings leikskólastarfs og sex starfsdagar á ári.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þátttaka í gerð skólanámskrár, ársáætlunar ásamt öðrum verkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Þátttaka í stjórnun, skipulagningu og mati á starfsemi deildarinnar.
- Ábyrgð á deildarfundum ásamt upplýsingagjöf til starfsfólks.
- Samskipti, samvinna og upplýsingagjöf til foreldra/forráðamanna barna á deildinni.
- Umsjón með móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Samskipti og samvinna við aðrar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum.
- Ýmis önnur verkefni skv. starfslýsingu deildarstjóra hjá Kennarasambandi Íslands og sem leikskólastjóri felur deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði (á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
- Reynsla og þekking á starfi deildarstjóra og/eða leikskólastarfi.
- Reynsla af breytingastjórnun.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Skapandi hugsun og metnaður í starfi.
- Hæfni til að taka þátt í lærdómssamfélagi í þróun.
Við bjóðum upp á:
- Vinnustyttingu sem tekin er út með haustfríi, jólafríi og í Dymbilviku.
- Skipulagða undirbúningstíma utan deildar.
- Tímabundin viðbótarlaun (TV-einingar).
- Heilsuræktar- og sundkort á vegum sveitarfélagsins.
- Sveitarfélag aðstoðar við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk sem flytur til okkur.
- Tækifæri til símenntunar.
- Umfram allt skemmtilegan vinnustað.
Um framtíðarstarf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.











