
CDA
CDA er nafn á vinnuhópi sérfræðinga sem hafa unnið saman í nokkur ár að hönnun og þróun á sérhæfðri SaaS hugbúnaðarlausn. Kerfið er sérstaklega hannað fyrir sölustarfsemi fjölmiðla.
CDA kerfið er sérhæft í gagnadrifnum aðferðum við markaðs- og samkeppnisgreiningar.
Fram undan er stofnun á fyrirtæki til að halda formlega utan um rekstur á kerfinu og samtengda viðskiptahagsmuni. Aðalstöðvar starfseminnar verða á Íslandi ásamt sérstakri starfsstöð í Holland
Vinnuhópurinn hefur aðstöðu í SERES frumkvöðlasetri Háskólans í Reykjavík. Verkefnið hefur hlotið styrk frá Tækniþróunarsjóði.

CDA leitar að verkefnastjóra
Við sækjumst eftir metnaðarfullum og kraftmiklum stjórnanda í starf verkefnastjóra. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf við að leiða vinnu við loka undirbúning og áskriftasölu CDA kerfisins til fjölmiðla í Hollandi.
Starf verkefnastjóra er tækifæri til að starfa í spennandi, skapandi og alþjóðlegu viðskiptaumhverfi.
Upphafsmarkaður starfseminnar er Hollenski fjölmiðlamarkaðurinn.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Menntun- og/eða reynsla í frumkvöðlafræðum er kostur ( Innovation Management )
Mjög góð tölvukunnátta
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Geta tjáð sig vel á hollensku og/eða þýsku er kostur
Starfsreynsla hjá greiningarfyrirtæki er kostur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
Reynsla af vörukynningum og/eða sölu á hugbúnaðarlausnum er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða frágang við að gera CDA kerfið tilbúið til að hefja áskriftasölu félagsins í Hollandi
Hefja sölustarfsemi á CDA - SaaS hugbúnaðarþjónustu til fjölmiðla í Hollandi
Ábyrgð á verðskrá, rekstri og nýjum viðskiptasamningum
Styðja við innleiðingu og þjálfun nýrra notenda
Ráða, þjálfa og stjórna sjálfstætt starfandi gagnagreinendum í Hollandi
Þátttaka í þróunarverkefnum í samstarfi við forritara og framkvæmdastjóra hins nýja félags
Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra sem er næsti yfirmaður
Auglýsing birt17. nóvember 2022
Umsóknarfrestur30. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Nauthólsvegur 102, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AlþjóðaviðskiptiFljót/ur að læraFrumkvæðiLeiðtogahæfniSamviskusemi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Power Platform & AI Developer
Alvotech hf

SAP Functional Analyst – Manufacturing, Quality & PP/DS
Alvotech hf

Skrifstofustjóri
Vopnafjarðarhreppur

Sölu og Markaðsfulltrúi í Beautybox
Beautybox

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Fjármálastjóri
SÁÁ

Bókari
Eðalfang ehf.

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Sérfræðingur í netkerfum
Advania