
Framúrskarandi sölumaður óskast
Bpro heildverslun leitar að ábyrgum og drífandi einstaklingi með góða framkomu í starf sölumanns.
Starfið felur í sér sölu og ráðgjöf á hágæða vörum fyrir húð og hár, þjónustu við viðskiptavini og ýmislegt annað sem fellur til.
Hæfniskröfur:
Mikil reynsla af sölustörfum, menntun á því sviði er kostur
Hárgreiðslumenntun er kostur
Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
Góð færni í að vinna í hóp
Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
Góð framkoma
Góð tölvukunnátta
Reynsla af DK bókhaldskerfi er kostur
Nánari upplýsingar um starfið í síma 552-5252.
Umsóknarfrestur er til 23 júní en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknir skulu sendar í gegnum umsóknarkerfi Alfreðs á þessari síðu.
Bpro er heildsala sem þjónustar hárgreiðslustofur, snyrtistofur og apótek um land allt. Fyrirtækið er staðsett í Ögurhvarfi 4 og vinnutími er 08:30 - 16:30. Við erum að leita að ábyrgum einstaklingi sem á auðvelt með að vinna með öðrum. Fjölbreytt og skemmtilegt starf á líflegum vinnustað.











