

Bókasafn: bókaverðir
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa bæði á Bókasafni Dalvíkurbyggðar og í Menningarhúsinu Berg.
Menningarhúsið Berg er lifandi menningarmiðstöð í hjarta Dalvíkur þar sem eru bókasafn, fjölnota salur og veitingarekstur. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi, meðal annars tónleikar, sýningar, ráðstefnur, fundir, námskeið, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir.
Bókasafn Dalvíkurbyggðar: bókaverðir
Tvö störf í 40% stöðuhlutfalli bókavarðar. Möguleiki er á að skoða önnur starfshlutföll eftir samkomulagi.
Störfin eru unnið á opnunartíma bókasafnsins (11:00–17:00). Starfsmenn vinna fjóra virka daga í viku á rúllandi vöktum sem skiptast vikulega milli fyrri og seinni vakta. Umsækjendur þurfa að geta unnið til kl.17:00 á daginn og einstaka laugardagsvaktir frá kl. 13:00–16:00 sem eru til viðbótar við starfshlutfall. Möguleiki er að tengja saman starf á bókasafni við auglýstar stöður í Menningarhúsinu Bergi.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Safna og Menningarhússins Bergs.
- Þjónusta og ráðgjöf við gesti
- Útlán, skil og frágangur safnkosts
- Umsjón með samfélagsmiðlum og miðlun upplýsinga á vef
- Skráning, flokkun og uppsetning bóka og annars safnkosts
- Aðstoð við skipulagningu og framkvæmd viðburða, kynninga og fræðslustarfs
- Kynning á þjónustu bókasafnsins og þátttaka í þróun og eflingu starfseminnar
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri bókasafnsins
- Góða kunnáttu og færni á samfélagsmiðlum og eiga auðvelt með að tileinka sér ný forrit
- Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og hafa ríka þjónustulund
- Hafa góða skipulagsfærni, vinna sjálfstætt, lausnamiðað og eiga auðvelt með samstarf
- Hafa góða færni í íslensku í máli og riti
- Hafa góða færni í ensku í máli og riti
- Reynsla af bókasafnsstörfum er kostur en ekki skilyrði
Heilsusjóður Dalvíkurbyggðar
Enska
Íslenska










