

Starf í vöruhúsi
Við leitum eftir jákvæðum og hressum einstaklingum í starf við flokkun sendinga í vöruhúsi.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 9:30-15:50, möguleiki er á auka vöktum á kvöldin og um helgar. Um er að ræða framtíðarstarf (ekki sumarstarf). Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir eru afgreiddar jafnóðum, við hvetjum þig til að sækja um sem fyrst.
Allar umsóknir fara í gengum Alfreð.is.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
- Flokkun sendinga í vöruhúsi
- Tiltekt og önnur tilfallandi verkefni.
- 17 ára eða eldri
- Jákvæðni
- Fljót/ur að læra
- Skipulag og stundvísi
- Vönduð og sjálfstæð vinnubrögð
Hjá Dropp starfa um 70 manns í fjölbreyttum störfum. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og jákvæðan og góðan starfsanda.
Dropp er leiðandi fyrirtæki í póstþjónustu og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Dropp var fremst í flokki póstþjónustu hjá Íslensku Ánægjuvoginni 2023, 2024 & 2025, valið besta íslenska vörumerkið á fyrirtækjamarkaði 2023 hjá Brandr og fremst í flokki almannaþjónustu fjögur ár í röð í Meðmælingu Maskínu.
Íslenska
Enska










