
Vaktstjóri afgreiðslu
Vaktstjóri ber ábyrgð á daglegri þjónustu og tryggir að þjónusta við viðskiptavini, hreinlæti og starfsumhverfi séu ávallt til fyrirmyndar. Starfið felur í sér umsjón með afgreiðslu, daglegum þrifum á ákveðnum svæðum í samvinnu við ræstiteymi Sporthússins ásamt leiðsögn starfsfólks á vakt. Unnið er 7-8 tíma á morgun-milli- og kvöldvöktum til skiptis og annan hvern laugardag 8-14. Flestar vaktir eru frá kl. 05:15-13:15- 10:00-18:00 og 16:00-23:00 mán.-fös. og 07:45-14:00 annan hvern laugardag. Stundvísi er mjög mikilvæg
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á daglegri þjónustu sem Sporthúsið veitir á sinni vakt, skipuleggur verkefni og forgangsraðar í samráði við rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra.
- Leiðbeinir, styður og fylgir eftir starfsfólki á vakt.
- Tryggir að verklagsreglum, öryggisreglum og þjónustustöðlum sé fylgt.
- Tekur á móti og þjálfar nýtt starfsfólk.
- Heldur utan um samskipti við rekstrarstjóra og skilar upplýsingum um frávik, bilanir eða önnur atriði sem krefjast eftirfylgni.
- Veitir framúrskarandi þjónustu og tekur vel á móti viðskiptavinum.
- Leiðbeinir viðskiptavinum um þjónustu, reglur og aðstöðu.
- Tekur á móti ábendingum og kvörtunum á faglegan og lausnamiðaðan hátt.
- Tekur virkan þátt í daglegum þrifum stöðvarinnar.
- Fylgist með að öll svæði séu hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir viðskiptavini.
- Fylgist með ástandi tækja og húsnæðis.
- Tryggir að öryggisbúnaður og neyðarútgangar séu ávallt aðgengilegir og í lagi.
- Opnar og lokar stöðinni samkvæmt verklagsreglum þegar við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum er skilyrði
- Góð samskiptafærni og þjónustulund.
- Frumkvæði, ábyrgðarkennd og skipulagshæfni.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og taka ákvarðanir.
- Jákvætt viðmót og hæfni til að leiða með góðu fordæmi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Flugvallarbraut 701, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Við leitum að helgarstarfsfólki!
S4S Premium Outlet

Starfsmaður í afgreiðslu í vöruhúsi Garra
Garri

Sölukona/Sölumaður
DÚKA

Starfsfólk í verslanir Lindex
Lindex

Starfsfólk í ísbúð og booztbar - Akureyri
Ísbúðin Akureyri

River óskar eftir starfsmanni á Egilsstöðum
River ehf

Sölu- og þjónusturáðgjafi í verslun á Akureyri
Sýn

Sölu- og þjónustustarf í tískuvöruverslun Curvy
Curvy verslun

Lagerstarfsmaður
Kappahl

Starfsmaður í verslun - árstíð og heimili
Byko

Afgreiðsla - Háaleitisbraut 58-60
Mosfellsbakarí

Afgreiðslustarf, Eyesland Keflavíkurflugvelli
Eyesland Gleraugnaverslun