PwC
PwC
PwC

Bókari

Starfsemi PwC fer vaxandi og við leitum að bókara til starfa í Reykjavík. Viðkomandi mun starfa við fjölbreytt bókhaldsverkefni fyrir viðskiptavina PwC. Meðal verkefna eru færsla bókhalds, afstemmingar, launavinnsla og skattframtalsgerð.

Við leitum að aðila með áhuga á færslu bókhalds og sýnda færni til að tileinka sér nýjar, stafrænar lausnir. Teymi Bókhalds og launa er eitt af megin starfssviðum PwC og telur 15 starfsmenn í Reykjavík. Verkefni sviðsins eru færsla bókhalds, launavinnsla, uppgjörsvinna, vsk skil og skattskil.

Við bjóðum upp á sveigjanleika og tækifæri til að vaxa í starfi. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og starfsþjálfun allra í teyminu, en virk fræðslustefna er hjá PwC með reglulegum námskeiðum bæði innanhús sem og hjá samstarfsfélögum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af notkun DK viðskiptahugbúnaðar er kostur
Reynsla Business Central og/eða H3 launakerfi er kostur
Mjög góð almenn tölvukunnátta
Metnaður til að ná árangri í starfi
Góð geta til að vinna í hóp
Samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum
Sjálfstæði, frumkvæði og sterk samskiptahæfni
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Færsla bókhalds
Afstemmingar
Launavinnsla
Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini
Auglýsing birt23. nóvember 2022
Umsóknarfrestur2. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar