

Bílstjóri
Benchmark Genetics Iceland hf. óskar eftir að ráða bílstjóra. Í boði er starf hjá alþjóðlegu, framsæknu fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki.
Bílstjóri ber ábyrgð á öllum flutningum samkvæmt þörfum og beiðnum deilda innan Benchmark Genetics Iceland.
· Sjá um alla flutninga eftir þörfum og beiðnum deilda Benchmark Genetics.
· Skipuleggja og forgangsraða flutningum í samráði við yfirmenn viðkomandi deilda.
· Vera hluti af fiskeldisteyminu og vera reiðubúin(n) til að taka þátt í almennum störfum tengdum starfseminni eftir þörfum og fyrirmælum yfirmanns.
· Starfa samkvæmt gæðakerfi Benchmark Genetics.
· Fylgja gildandi lögum og reglum um ökuréttindi til aksturs þungra ökutækja.
· Tryggja að ökutæki séu ávallt rekin á öruggan og ábyrgan hátt.
· Tilkynna tafarlaust atvik, tafir, slys eða bilanir á ökutækjum til yfirmanns.
· Fylgja reglum um líföryggi, hreinlæti og sótthreinsun sem tengjast fiskeldisstarfsemi.
· Tryggja að flutningar hafi ekki neikvæð áhrif á velferð dýra, gæði afurða eða staðla búsins.
· Viðhalda skýrum og reglulegum samskiptum við skipuleggjendur flutninga, yfirmenn og stjórnendur deilda varðandi áætlanir og breytingar.
· Koma fram fyrir hönd Benchmark Genetics á faglegan hátt í samskiptum við utanaðkomandi samstarfsaðila og birgja.
· Meirapróf.
· Lyftarapróf á skotbómulyftara
· Reynsla af akstri þungra ökutækja eða sérhæfðum flutningum í landbúnaði eða fiskeldi.
· Þekking á íslenskum samgöngu‑ og umferðarreglum sem og akstursaðstæðum.
- Hvetjandi starfsþróunarstefna
- Afmælisfrí á launum
- Niðurgreiddur matur
- Samgöngusamningur
- Heilsustyrkur
Enska
Íslenska










