OK
Á árinu 2022 sameinuðust Opin Kerfi og Premis undir nafninu OK, en þar sameinast eldmóður, reynsla og þekking starfsfólks sem setur þarfir viðskiptavina í forgang.
OK hefur að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum.
Vinnustaðurinn er krefjandi og skemmtilegur þar sem starfsmenn eru hvattir til að vera sjálfstæðir í starfi og hafa áhrif á eigið starfsumhverfi.
Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi.
OK hlaut viðurkenninguna Fyrirtæki ársins 2023 sem veitt er fyrirtækjum fyrir framúrskarandi vinnuumhverfi og starfsanda, en fyrirtækið hefur hlotið þá viðurkenningu þrjú ár í röð.
Bakendaforritari: Vef- og hugbúnaðarlausnir OK
Við í vef- og hugbúnaðarlausnateymi OK leitum að metnaðarfullum bakendaforritara til að ganga til liðs við okkur. Sem hluti af teyminu munt þú koma að bakendaforritun, bæði fá tækifæri til að vinna sjálfstætt og sem hluti af stærri heild í margskonar verkefnum.
Ef þú brennur fyrir þróun stafrænna lausna og útfærsla á bakendum í vefheimum þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bakendaforritun veflausna af öllum stærðum og gerðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Minnsta kosti 5 ára reynsla af forritun og hugbúnaðargerð.
- Menntun í tölvunarfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi skilyrði.
- Þekking á útfærslu vefþjónusta (REST/SOAP) og uppbyggingu vefkerfa.
- Þekking á viðmótsþróun í TypeScript, HTML, CSS er kostur
- Reynsla með forritunarmálinu PHP æskileg, þekking á Python, Java og .NET er kostur.
- Þekking og reynsla af gagnagrunnum (MySQL og MsSQL) og færni í skipanamálinu SQL er kostur.
- Reynsla með sjálfvirknivæðingu, fyrir prófanir og uppfærslu vefkerfa.
- Áhugi og metnaður fyrir öryggi vefkerfa, þekking á OWASP top 10 æskileg.
- Jákvætt hugafar, samskiptahæfni og færni í teymisvinnu nauðsynleg.
Auglýsing stofnuð12. apríl 2024
Umsóknarfrestur22. apríl 2024
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
.NETBakendaforritunHönnun gagnagrunnaHugbúnaðarprófanirLaravelPHPPythonSCRUMSjálfvirkar prófanirSQL
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Senior Software Engineer
DTE
Security and Compliance Specialist
LS Retail
Verkefnastjóri í upplýsingatækniráðgjöf
Deloitte
Lausnamiðaður ráðgjafi
Deloitte
Sérfræðingur í upplýsingatækni
Innnes ehf.
Sérfræðingur í viðskiptagreind (BI)
Expectus
Sérfræðingur í gervigreind
AVIA
Developer
Bláa Lónið
Business Central PLÚS forritari óskast
JYSK
Kerfisstjóri óskast hjá einum stærsta smásöluaðila á Íslandi
JYSK
Hugbúnaðarsérfræðingur
Reiknistofa lífeyrissjóða
Junior Data Engineer
CCP Games