Norðurál
Norðurál
Norðurál

Áreiðanleikafræðingur

Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af meginhlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að auka áreiðanleika búnaðar og halda bilunum í lágmarki með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Gerð fyrirbyggjandi viðhaldsáætlana fyrir framleiðslubúnað

·       Rýni á viðhaldskerfi til að greina tækifæri til umbóta

·       Rótargreiningar á bilunum í búnaði

·       Greining gagna, skýrslugerð og tölfræðileg úrvinnsla

·       Þróun lykilmælikvarða

·       Tæknilegur stuðningur við undirbúning og lokaúttektir á nýjum búnaði

·       Gæðaeftirlit og tæknilegur stuðningur við verkáætlanadeild og viðhaldsteymi

·       Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði

·       Sveinspróf í raf- eða vélvirkjun er kostur

·       Góð tölfræðikunnátta og greining gagna

·       Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð

·       Þekking á SAP tölvukerfi er kostur

·       Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar

Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar