
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Almennur starfsmaður í vöruhúsi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum starfsmanni til liðs við okkur í sumar í vöruhús BYKO í Kjalarvogi. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er til skiptist viku og viku 07:00-16:00 og 14:00-23:00.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við leitum að starfsmanni með:
- Reynsla af afgreiðslu- og lagerstörfum
- Mikla þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Lyftararéttindi, skilyrði
- Bílpróf, skilyrði
- Reynsla af vinnu á skotbómilyftara, kostur
- Reynslu af starfi í byggingariðnaði eða þjónustu við iðnaðinn, kostur
Helstu verkefni
- Almenn afgreiðslu - og lagerstörf
- Móttaka og frágangur á vörum
- Afgreiðsla og þjónusta til viðskiptavina
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Ægir Baldursson, rekstrarstjóri ([email protected]).
Auglýsing birt16. júlí 2021
Umsóknarfrestur23. júlí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Framtíðarstarf í vöruhúsi TDK Foil Iceland ehf, Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Lager- og þjónustustarf
Rafha - Kvik

A4 - Móttaka í vöruhúsi
A4

Verkstæðismóttaka og varahlutir
IB ehf

Nettó Aðaltorgi óskar eftir næturstarfsmönnum - NÝ VERSLUN Reykjanesbæ
Nettó

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Starfsmaður á lager
Rafkaup

Nettó Aðaltorgi snyrtivörudeild - NÝ VERSLUN Reykjanesbæ
Nettó

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Rennismiður með reynslu af CNC rennibekkjum og fræsivélum
Héðinn

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál