
Rafha - Kvik
Við leggjum allt okkar stolt í að selja vönduð heimilistæki og innréttingar ásamt því að veita fyrsta flokks þjónustu - og hafa gaman af! Hjá okkur geta viðskiptavinir valið sér allt í eldhúsið, innréttingar og tæki frá heimsþekktum framleiðendum.
Við leggjum ríka áherslu á að starfsumhverfið einkennist af sveigjanleika, virðingu, samvinnu og góðri liðsheild þar sem allir eiga að fá að njóta sín í leik og starfi.
Hjá okkur eru engir tveir dagar eins.

Lager- og þjónustustarf
Rafha leitar að þjónustulunduðum starfsmanni til að sinna fjölbreyttu starfi á lager og í verslun
Helstu verkefni eru móttaka og frágangur vörusendinga, afgreiðsla og pökkun pantana, útkeyrsla, gámalosanir, uppsetning raftækja, vörutalningar og önnur almenn lagerstörf. Viðkomandi mun einnig aðstoða í verslun á álagstímum.
Við óskum eftir duglegum einstaklingi sem hefur frumkvæði og jákvæðni að leiðarljósi.
Vinnutími er 9-18 alla virka daga.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öll almenn lagerstörf s.s. gámalosun, frágangur sendinga, afgreiðsla og pökkun pantana.
- Útkeyrsla til viðskiptavina
- Tenging og uppsetning á heimilistækjum hjá viðskiptavinum
- Vörutalningar og önnur tilfallandi verkefni
- Umsjón með skilavörum
- Aðstoð í innréttingadeild á álagstímum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rafvirkjamenntun eða önnur iðnmenntun er kostur
- Bílpróf skilyrði og lyftarapróf er kostur
- Snyrtimennska, skipulagshæfileikar, frumkvæði og jákvætt viðmót
Fríðindi í starfi
Íþróttastyrkur
Niðurgreiddar máltíðir í gegnum Maul
Auglýsing birt20. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraHandlagniÚtkeyrslaVandvirkniVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í veitingaeldhús
Ráðlagður Dagskammtur

A4 - Móttaka í vöruhúsi
A4

Bílstjóri og lagerstarfsmaður
Vörumerking ehf

Lagerstarfsmaður
Hirzlan

Delivery driver - Inventory and Utility
DEIG bakery

Verkstæðismóttaka og varahlutir
IB ehf

Nettó Aðaltorgi óskar eftir næturstarfsmönnum - NÝ VERSLUN Reykjanesbæ
Nettó

Starfsmaður á lager
Rafkaup

Sölumaður hjá Fífa barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Sölumaður í hlutastarf hjá Fífu barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Nettó Aðaltorgi snyrtivörudeild - NÝ VERSLUN Reykjanesbæ
Nettó

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.